Innlent

Þurftu að setja bróður ökumanns í járn

Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum.

Gekk það svo langt að lögregla varð að járna hann og handtaka, en brotlegi bróðir hans hélt hinsvegar stillingu sinni.

Annar var tekinn úr umferð skömmu síðar fyrir sömu sakir, en þar fór allt friðsamlega fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×