Innlent

Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða

Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt.

Þá mældist bíll á of miklum hraða á Þingvallavegi í gærkvöldi. Ökumaður reyndist vera 16 ára stúlka og því réttindalaus. Jafnaldra hennar var farþegi í bílnum og sóttu forledrar þeirra stúlkurnar á lögreglustöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×