Innlent

Lést í Jökulsá í Lóni

Maðurinn sem fannst látinn eftir að hann féll af baki í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld hét Ingólfur Vopni Ingvarsson. Hann var 53 ára, búsettur á Höfn í Hornafirði og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Ingólfur var í hestaferð ásamt hópi manna þegar slysið varð. Félagar hans lentu í sjálfheldu á eyri í ánni en var bjargað um kvöldið upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×