Ódýrast að ferðast um landið með Strætó 6. september 2012 03:30 Hinir hefðbundu gulu vagnar Strætós munu halda sig við höfuðborgarsvæðið á meðan þessir bláu og gulu keyra út á land.
Að taka strætó á milli bæjarfélaga virðist vera ódýrasti ferðamátinn sem völ er á. Vagnarnir munu keyra til meira en fjörutíu bæjarfélaga eftir áramót. Strætó bs. fær 30 milljónir árlega frá sveitarfélögunum fyrir þátt sinn í starfinu. Hinar hefðbundnu strætóferðir eru ekki lengur bundnar við styttri vegalengdir innan bæja- eða borgarmarka, eins og landsmönnum ætti að vera orðið kunnugt. Farþegar geta ferðast með vögnunum um allt Suðurland, mestallt Norðurland og eftir áramót til Austurlands. Strætó er farinn að sinna mun víðara þjónustuhlutverki; ferðum sem rútur og skipulagðir langferðarbílar gerðu áður, eins og við þekkjum frá nágrannalöndum okkar. Mikið hefur verið fjallað um þetta breytta fyrirkomulag Strætós í fjölmiðlum, og sýnist sitt hverjum. Sérleyfishafar hafa gagnrýnt fyrirtækið og segja sumir að útboðin hafi ekki verið sanngjörn, jafnvel ósamkeppnishæf. Verkefnið er samstarf á milli Strætós BS. og landshlutasamtaka sveitarfélaga. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætós, segir það fyrst og fremst til komið vegna hagræðingar í stjórnsýslunni og vilja sveitarfélaganna til að bjóða landsmönnum upp á sem hagkvæmastan ferðamáta. „Málaflokkurinn fluttist frá ríkinu til landshlutasamtaka sveitarfélaga, ásamt peningunum sem því fylgir,“ segir Reynir. „Sá peningur er notaður til að bjóða upp á akstur á milli landshluta. Aksturinn er boðinn út, lægsta tilboði tekið og allt er þetta miðað við fjárhaginn sem er í boði.“ Reynir segir forskot Strætós vera stórt í þessum efnum, þar sem reynsla, tækni og þekking komi saman til að gera þetta á sem öruggastan og hagkvæmastan hátt. Útboðsverðmæti alls aksturs um Vestur- og Norðurland er 202 milljónir króna og fær Strætó 15 prósent af þeirri þóknun. „Þessar 30 milljónir eru fyrir okkar umsýslu í málinu,“ segir Reynir. „Það er fyrir að reka og sjá um upplýsingakerfi, öryggismál, skipulagningu ferða og viðhald ökutækja.“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira