Sláturtíð á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. september 2012 20:32
Um hundrað þúsund fjár verður slátrað hjá SS á Selfossi næstu átta vikurnar. Fjörutíu Pólverjar og átta Nýsjálendingar fluttu sérstaklega á Selfoss til að vinna í slátruninni. Hluti af kjötinu fer til Japans, en þeir vilja bara spikfeitt lambakjöt og borða það helst hrátt. Þá er lambakjöt nú í fyrsta sinn flutt til Rússlands. Um hundrað starfsmenn voru ráðnir sérstaklega í sláturtíðina á Selfossi, sem mun standa yfir næstu vikurnar. Um tvö þúsund og fimm hundruð lömbum er slátrað á dag og því nóg að gera hjá starfsfólkinu. Haustslátrunin fer vel af stað. „Við erum hér með fullt hús af úrvals fólki sem er staðráðið í að gera vel, framleiða úrvalsvöru úr frábæru hráefni, sem er íslenska lambakjötið," segir Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri hjá SS. Lömbin koma af öllu Suðurlandi og víðar, eða af svæðinu í Öræfum í austri og alveg vestur í Dali. Guðmundur segir dilkana fallega og væna. En kjötið fer ekki bara á íslenska markaðinn. „Nei, nei, við flytjum kjöt út á erlenda markaði, Evrópu, Noreg, Japan. Og Rússland er nýtt hjá okkur núna. Það fór aðeins af stað í fyrra en nú sjáum við fram á að flytja meira þangað," segir Guðmundur.Hvernig kunna Japanir og Rússar við íslenska lambakjötið? spyr fréttamaður. „Þeim hlýtur að líka það vel því þetta er svo frábær vara sem við eigum hérna og á ekkert nema framtíðina fyrir sér," segir Guðmundur.Japanir vilja frá spikfeitt kjöt? spyr fréttamaður. „Já þeir eru hrifnir af feita kjötinu. Mjög hrifnir af því. Ég held að þeir borði það hrátt að einhverju leyti. Svo þeir vilja hafa vöðvana vel fitusprengda og fallega," segir Guðmundur. Fjörutíu Pólverjar komu sérstaklega til landsins til að vinna í sláturtíðinni á Selfossi og átta Nýsjálendingar, allt hörkuduglegt fólk eins og Íslendingarnir.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira