Innlent

Vill sameina sjúkraflug á landinu

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar
„Við gætum hugsanlega gert betur með því að vera ávallt með vakt á staðnum og það hlýtur auðvitað að vera framtíðin," segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi þar um þá hugmynd að sameina sjúkraflug á landinu og að hafa ávallt mannaða vakt á flugvöllum.

Eins og staðan er núna þá eru þyrluflugmenn og aðrir oft á bakvakt þegar útkall berst. Georg segir að þetta sé afar slæm staða og að slíkt þekkist ekki hjá björgunarsveitum erlendis.

Með sameinuðu sjúkraflugi fylgir þó kostnaður — mun meiri mannskap þyrfti til að manna vaktirnar. Georg bendir á að Landhelgisgæslan ætti að hugsa um málið út frá viðskiptasjónarmiðum.

„Við græðum auðvitað mikla peninga með hverju mannslífi sem við björgum," segir Georg og bendir á að Vegagerðin áætli að hvert mannslíf sé mörg hundruð milljóna króna virði.

Þá segir Georg að meiri gróði sé fólgin í því að hafa ávallt mannaða vakt á staðnum. „Vafalaust. Allt sem er gert til að efla og bæta þessa þjónustu okkar er mikil tekjulind."

Hægt er að hlusta á fróðlegt viðtal við Georg hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×