Skógur í Fnjóskadal jafnaðist við jörðu 20. september 2012 06:30 Hundruð ef ekki þúsundir fjár hafa drepist á Norðausturlandi á síðustu dögum og eru bændur enn að finna dautt fé á fjöllum. Mynd/Bryngeir Jónsson
Skóglendi innst í Fnjóskadal fór afar illa í veðurhörkunum fyrr í mánuðinum. Hundrað ára gömul tré gáfu sig undan snjónum. Enn finnst dautt fé á Norðausturlandi. Skógræktarbændur í Þingeyjarsýslum segja trén hafa farið illa. „Ég ólst upp hér í dalnum og ég man ekki eftir svona tjóni. Á ákveðnum kafla hafa um tuttugu prósent af trjánum farið. Þetta lítur illa út,“ segir Guðni Þorsteinn Arnþórsson, starfandi skógarvörður í Vaglaskógi í Fnjóskadal. Skóglendið innst í dalnum, Lundskógur og Þórðarstaðaskógur, fór afar illa í veðurhamnum fyrr í mánuðinum. Sums staðar er að finna hundrað ára gömul tré sem brotnuðu í óveðrinu. Vaglaskógur fór ekki eins illa í óveðrinu og skógarnir innst í dalnum, en þó er þar einnig að finna brotin tré. Guðni segir að þegar trén eru ekki búin að fella laufin setjist mikill þungi á þau þegar úrkoman er eins mikil og hún varð fyrir rúmri viku. „Blautur krapsnjór hlóðst á trén með miklu hvassviðri í kjölfarið með þessum afleiðingum,“ segir hann. „Þegar trén eru enn með lauf og nálar standa þau ekki undir þessum þunga, full af snjó. Þau bara gefa sig.“ Margir skógarvegir og stígar í Þórðarstaðaskógi og Lundskógi eru ófærir eftir óveðrið, en Guðni segir það standa til að reyna að hreinsa sem mest út úr skógunum af þeim trjám sem féllu. Valgerður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga, segir formlega úttekt á gróðurtjóninu ekki hafa verið gerða. Hún hafi þó rætt við skógræktarbændur á svæðunum sem verst urðu úti sem tjáðu henni að veðrið hefði leikið trén illa. Stafafuran hefði farið hvað verst, en birkið og víðirinn ættu það til að rétta sig við ef þau hefðu ekki brotnað. Þá höfðu stór og gömul garðtré, eins og reyniviður og birki, í Mývatnssveit og Aðaldal mörg hver brotnað eða fallið í snjóþyngslunum fyrr í mánuðinum, að sögn íbúa þar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Sjá meira