Segir börn flýja frá Sýrlandi vannærð Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 9. september 2012 20:30
Sýrlensk börn í flóttamannabúðum UNICEF í Jórdaníu eru ofbeldisfull og þjást af næringarskorti þegar þau koma í búðirnar. Þetta segir íslensk kona sem starfar þar. Hún segist hafa séð sjö ára stelpur slást eins og fullorðna karlmenn. Yfir hundrað og áttatíu þúsund sýrlenskir flóttamenn hafa flúið yfir til Jórdaníu frá því að átökin hófust í Sýrlandi fyrir rúmlega einu og hálfu ári síðan. Steinunn Björgvinsdóttir sem starfar fyrir barnavernd UNICEF í Jórdaníu segir gríðarlegan fjölda streyma inn í landið dag hvern. „Daginn sem flestir komu yfir voru hátt í 4000 manns sem komu á einum sólarhring. Þannig að það er mikið viðbragðsstarf sem þarf að setja upp til að geta tekið á móti öllu þessu fólki," segir Steinunn. Zaatari flóttamannabúðirnar eru staðsettar um fimmtán kílómetrum frá landamærum Sýrlands og Jórdaníu og segir Steinunn fólk vera uppgefið og vannært eftir langt ferðalag. Þá séu börnin þreytt, pirruð og mörg ofbeldisfull vegna álagsins. „Þegar maður kom á barnvænu svæðin okkar þá var mikið um slagsmál og ég man sérstaklega eftir að ég var svo hissa á því að sjá ungar stelpur 7-8 ára gamlar slást eins og fullorðnir karlmenn. Þetta er rosalegt og hefur allt að gera með það hverskonar álagi þær eru undir." Á barnvænu svæðunum er reynt að koma lífi barnanna í eðlilegar skorður og segist Steinunn sjá mikinn mun á einungis einum mánuði. „Krakkarnir eru allt öðruvísi, þau leika sér meira, það eru minni slagsmál, maður sér þau leiðast og róla sér saman. Börnin eru orðin ofboðslega náin starfsfólkinu þannig að maður sér að þetta er að gera rosalegan mun þannig að það þarf rosalega lítið til þess að hjálpa þessum börnum." Söfnunarsími UNICEF: 908-1000 / 908-3000 / 905-5000
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Fleiri fréttir CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent