Skorið niður um á fimmta hundrað milljónir hjá sérstökum saksóknara Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. september 2012 18:30
Skorið verður niður hjá sérstökum saksóknara um tæpan hálfan milljarð króna í fjárlögum næsta árs, ef stjórnvöld fylgja áætlunum embættisins sjálfs. Áætlanir embættisins gera ráð fyrir að starfsmönnum þess fækki niður í 50 á næsta ári, en þeir eru 110 í dag. Heildarútgjöld ríkisins til embættis sérstaks saksóknara samkvæmt fjárlögum ársins 2012 námu 1,3 milljörðum króna. Nú liggur fyrir að útgjöld til embættisins verða skert um hundruð milljóna króna á næsta ári. Samkvæmt minnisblaði, sem Ólafur Þór Hauksson, ritaði Rögnu Árnadóttur, þáverandi dómsmálaráðherra í maí 2010 var gert ráð fyrir að útgjöld embættis sérstaks saksóknara á árinu 2012 yrðu 1280 milljónir króna en kostnaðurinn myndi síðan lækka um 490 milljónir á árinu 2013 niður í 790 milljónir króna. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir að starfsmönnum embættisins fækki niður í 50 á árinu 2013, en í dag starfa 110 hjá embættinu. Í þessu samhengi skal hafa í huga að 14 stöðugildi færðust til embættisins við sameiningu þess við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Sé tekið mið af þessu ættu starfsmennirnir að verða 64 á næsta ári. Samkvæmt heimildum fréttastofu er minnisblaðið frá embættinu notað sem viðmið í fjárlagagerð næsta árs í innanríkisráðuneytinu. Sé því fylgt má búast við að skorið verði niður um á fimmta hundrað milljónir króna hjá embættinu á næsta ári. Embættinu er heimilt að flytja fjármuni milli ára ef það ráðstafar ekki öllum þeim peningum sem það hefur til umráða samkvæmt fjárlögum, en sparnaður þessa árs gæti því komið til móts við niðurskurð næsta árs. Ljóst er að áætlanir embættisins um ákærur hafa ekki gengið eftir. Dómstólaráð vann áætlun um málafjölda í minnisblaði til dómsmálaráðherra í júlí 2010 en samkvæmt henni áttu að berast dómstólunum að meðaltali 27 ákærur á ári frá sérstökum saksóknara árin 2010-2014 eða samtals 90 mál. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira