Þurfti að slá fundi af vegna mætingar 26. júní 2012 11:00 Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir deilur innan ríkisstjórnarflokkanna ástæðuna fyrir því að ekki var fundað um rammaáætlun í þingnefnd síðustu þrjár þingvikurnar. Björn Valur Gíslason, sem hlýðir hér á umræður á þingi, segir menn neita að vinna vinnuna sína.fréttablaðið/pjetur
Hætta þurfti við fundi í umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnuveganefnd Alþingis í gær þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðust komnir í sumafrí. Aðeins tveir nefndarfundir hafa verið haldnir síðan þingi var frestað 19. júní. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segir að funda hafi átt með gestum um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Stjórnarandstaðan hafi hins vegar sagst hafa verið komin í frí og neitað að mæta og sinna sínum störfum. Vinnan frestist því fram á haustið. „Það er úr vöndu að ráða ef menn bara stræka. Þú sendir ekki skipið á sjó ef það mætir bara önnur vaktin.“ Björn Valur bendir á að samkvæmt þingsköpum séu lögbundin sumarfrí Alþingis frá 1. júlí til 10. ágúst og enn lifi af júní. „Þeir eru bara farnir að slæpast og vilja ekki vera með. Þeir hafa kannski sprengt sig á lokasprettinum og eru núna heima að púsla. Það þarf að gefa þeim hafragraut og lýsi á morgnana og athuga hvort Eyjólfur hressist ekki.“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir málið dæmigert fyrir flaustursgang ríkisstjórnarinnar. Ekkert hafi verið fundað í atvinnuveganefnd um áætlunina síðustu þrjár vikur þingsins. Ástæðan sé ágreiningur milli stjórnarflokkanna. Samið hafi verið um afdrif málsins samhliða þinglokum. Það hafi því komið á óvart að þessi vika hafi verið ætluð í nefndarfundi. „Á þeim tíma voru menn náttúrulega búnir að gera ráðstafanir með sumarleyfi og annað, sumir komnir til útlanda og slíkt, þannig að við töldum þetta bara ekki boðlegt.“ Jón segir tilgangslaust að funda um málið, það verði að leggja fram að nýju í haust og vinna með gestum nú hefði því farið forgörðum. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur skilning á því að illa hafi gengið að manna fundi. „Þingmenn eru komnir í langþráð sumarfrí eftir harða vinnutörn undanfarinna þriggja ára. Þeir eru horfnir til sinna fjölskyldna og annarra starfa í kjördæmunum.“ Í samningum um þinglok felst að þegar rammaáætlun kemur aftur fyrir þing í haust er litið svo á að fyrstu umræðu sé lokið, þar sem um málið var rætt á nýyfirstöðnu þingi. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira