Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur 26. júní 2012 06:00 Thelma Dögg er alsæl með yrðlinginn. Hún fer stundum með hann út í bandi og segist þá vekja mikla athygli. Fréttablaðið/gva "
Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. Hún ákvað svo að keyra í burtu og koma eftir korter, því ef hann ætti mömmu myndi hún sækja hann. Svo komum við aftur og þá var hann enn þá þarna,“ segir Thelma Dögg Freysdóttir. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni tekið yrðlinginn í fóstur. "Við gátum ekki skilið hann eftir. Við vorkenndum honum, greyinu. Þannig að við tókum hann að okkur og hann er hérna enn,“ segir Thelma en fjölskyldan hefur gefið yrðlingnum nafnið Úlfur. Thelma segir að þau hafi frétt af veiðimanni sem hafi skotið tófu degi áður en þau fundu yrðlinginn. Það hafi líklegast verið móðirin. Annar yrðlingur fannst svo þremur dögum seinna. Hann var mjög vannærður og er nú í fóstri á öðru heimili. Thelma segir að yrðlingurinn þeirra hafi ekki verið í góðum holdum þegar hann fannst og hafi verið svangur. "Við fórum strax með hann heim og gáfum honum hakk. Núna gefum við honum blautan kattamat og hakk. Svo drekkur hann kaffirjóma með eggjum út í.“ Yrðlingnum hefur verið úthlutað hundabúri, en fyrir á fjölskyldan nokkra hunda. Thelma segir sambúðina við hundana ganga vel. "Þeir leika sér bara saman í rauninni. Hann er enn svo lítill.“ Rósa Kristín Jensdóttir, móðir Thelmu, segist ekki vita hvort fjölskyldan geti séð um yrðlinginn til frambúðar. "Ég veit ekki hvort það er sniðugt að hafa hann með hundunum. Ég á eftir að fara með hann inn í Húsdýragarð og sýna þeim hann. Ég held að hann muni eiga lengsta og besta lífið þar.“ Rósa hefur þó kynnt sér yrðlingauppeldi. "Ég hef lesið mér til á netinu og fólk hefur alið yrðlinga upp. Það er gert með svipuðum hætti og gert er við hunda. Það hefur bara gengið ágætlega. En þetta eru náttúrulega rándýr og grimm að eðlisfari, þannig að maður gæti alveg orðið fyrir biti,“ segir Rósa. Thelma er þó hæstánægð með nýju viðbótina á heimilinu. "Hann er algjört krútt og bræðir mann alveg.“katrin@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira