Innlent

56 brotamál við eftirlit á sjó

Gæslan hefur nýtt léttan bát á Breiðafirði við eftirlit.fréttablaðið/stefán
Gæslan hefur nýtt léttan bát á Breiðafirði við eftirlit.fréttablaðið/stefán
Fiskistofa hefur haldið uppi öflugu eftirliti með bátum sem stundað hafa grásleppuveiðar á yfirstandandi vertíð. Fiskistofa naut samstarfs við Landhelgisgæslu Íslands við veiðieftirlit í Breiðafirði á slöngubátnum Flóka. Það samstarf stóð í þrettán daga frá maí og fram í júní og var farið um borð í 39 grásleppubáta og ellefu strandveiðibáta. Þegar hafa sjö bátar verið sviptir veiðileyfi vegna brota. Fjögur mál hafa verið kærð til lögreglu, þar af tvö af Landhelgisgæslunni. Á tímabilinu hafa komið upp alls 56 brotamál. Um 29 mál eru enn í vinnslu og 27 erlokið.- shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×