Innlent

Norska kirkjan hliðstæð okkar

Karl Sigurbjörnsson
Karl Sigurbjörnsson
Karl Sigurbjörnsson biskup, gerði framtíð þjóðkirkjunnar að umtalsefni er hann setti prestastefnu í gær.

Karl sagði að í Noregi hafi orðið grundvallarbreyting á stöðu kirkjunnar eftir að fyrirsjáanlegt var að ríki og kirkja myndu skilja. Þingið komst að samkomulagi um nýtt stjórnarskrárákvæði. Það skilgreinir hina evangelísk lútersku kirkju sem þjóðkirkju sem njóti stuðnings ríkisins. Jafnframt er trú- og lífsskoðunarfélögum heitinn stuðningur ríkisvaldsins.

„Eftir þessa stjórnarskrárbreytingu er staða norsku kirkjunnar hliðstæð þeirri íslensku í meginatriðum,“ sagði Karl. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×