Innlent

Sjö grásleppubátar sviptir veiðileyfum

Sjö breiðfirskir grásleppubátar hafa verið sviptir veiðileyfum og mega ekki stunda veiðar á næstu vertíð.

Þá hafa mál fjögurra báta verið kærð til lögreglu og fimm útgerðir hafa fengið áminningar vegna brota á bátum þeirra.

Þetta er afrakstur sameiginlegs eftirlits Fiskistofu og Landhelgisgæslunnnar, sem stundað var á gúmmíbáti á Breiðafirði og var farið um borð í fjölda báta. Alls komu 56 brotamál upp, en þau alvarlegustu voru að landa framhjá vigt, brottkast á meðafla og að hafa of mörg net í sjó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×