Innlent

Sjómaður flæktist í veiðarfæri

Sjómenn að störfum. Athugið að myndin tengist ekki myndinni beint.
Sjómenn að störfum. Athugið að myndin tengist ekki myndinni beint.
Maður slasaðist á fæti þegar hann klemmdist milli kara við löndun úr bát í Þorlákshöfn í síðastliðinni viku. Meiðsl hans eru þó talin minniháttar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Þá kom annar bátur til hafnar með skipverja sem fallið hafði útbyrðis þegar verið var að leggja net suður af Krísuvíkurbjargi.

Hann hafði flækst í veiðarfæri og kvaðst sjálfur hafa stokkið yfir lunninguna og út í sjó svo minni líkur væru á að hann slasaðist alvarlega.

Skipverjar aðstoðu hann um borð aftur og var hann fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús til aðhlynningar en er ekki talinn alvarlega slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×