Innlent

Karlmaður réðist tvisvar á lögreglumenn

Karlmaður í annarlegu ástandi réðst í gærkvöldi á tvo lögregluþjóna, sem ætluðu að hafa tal af honum, sló annan þeirra og klóraði til blóðs.

Lögreglumennirnir gripu þá til varnarúða, og gátu þá yfirbugað manninn. Hann réðst aftur á lögreglumenn, þegar átti að vista hann í fangaklefa, en þeir náðu aftur að yfirbuga hann áður en hann ynni sjálfum sér aða þeim frekara mein.

Upphaf málsins var að hjón í austurborginni urðu var við manninn úti á svölum á íbúð þeirra og var hann að reyna að brjótast inn til þeirra. Þau hringdu á lögreglu, en á meðan hún var á leiðinni, klifraði hann aftur niður, og mætti þar lögreglumönnunum, með fyrrgreindum afleiðingum. Maðurinn verður yfirheyrður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×