Tindur Jónsson með greiningu á einhverfurófi 27. desember 2012 16:36 Ýr Sigurðardóttir er yfirlæknir á flogaveikideild á nýjum barnaspítala.
Það er gerólíkt að ala upp barn á einhverfurófi sem fengið hefur greiningu og barn á rófinu sem ekki hefur verið greint. Þetta segir Ýr Sigurðardóttir, sem gerðist nýlega yfirlækniir á flogaveikideild við fyrsta nýja barnaspítalann sem opnað hefur í Bandaríkjunum í 50 ár. Ýr er í forsíðuviðtali við Nýtt líf sem kemur út í dag. Hún er gift Jóni Sæmundssyni framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Ennemm, og á með honum átta börn, þar af tvo stráka með einhverfurófsröskun. Í viðtalinu ræðir Ýr um börnin sín átta en Tindur Jónsson, elsti sonur hennar, hefur hlotið tvo þunga dóma fyrir gróft ofbeldi og fíkniefni, og afplánar nú á Litla Hrauni.Barn með greiningu mætir björtu viðhorfi Ýr segir gjörólíkt að ala upp barn á einhverfurófi sem fengið hefur greiningu og barn á rófinu sem ekki hefur verið greint. Hún segist þekkja bæði af eigin raun og er sannfærð um að greiningarferli sé nauðsynlegt svo hægt sé að gera sanngjarnar kröfur til barnsins. „Tindur elsti sonur okkar fékk ekki greiningu fyrr en fyrir um ári síðan. Hann þótti erfiður og mótþróafullur. Sérviska hans var álitin frekja og ósveigjanleikinn brotinn niður. Ég fékk mörg ráð um það hvernig mætti koma vitinu fyrir hann en mér lærðist sem betur fer fljótt að ég yrði að fylgja minni eigin sannfæringu í meðhöndlun minni á honum. Nú þegar ég veit hvernig best er að gera hlutina þá brosi ég oft þegar ég átta mig á því að ég brást oftast rétt við með þann eldri. Ég vissi bara ekki afhverju ég gerði það þá. Barn með þekkta greiningu mætir björtu viðhorfi, og fær að heyra að það sé að gera sitt allra besta. Greining barnsins skýrir þá erfiðleika sem það á við að etja og það mætir skilningi. En viðmót umhverfisins er annað ef barnið er talið lenda í þessum erfiðleikum af því að það hegði sér ekki nógu vel, og sé þar af leiðandi ekki að gera sitt besta. Barnið finnur fyrir vonbrigðum foreldra sinna og kennara og fer að missa sjálfstraustið."Náin mæðgin „Við stöndum keik og ég þakka fyrir allan stuðning sem við höfum fengið frá okkar nánustu. Við höfum líka fundið fyrir slæmu umtali og þekkingarleysi, jafnvel kollega minna. Ég er afskaplega stolt af syni mínum og hvernig hann hefur unnið í sínum málum. Hann er að ljúka háskólanámi í hátækniverkfræði í vor og hann hefur lagt stund á námið í fangelsinu án þess að geta sótt tímana. Það finnst mér yfirnáttúrulega flott hjá honum," segir Ýr aðspurð um það hvernig henni líði með son sinn í fangelsi. „Okkar samband hefur alltaf verið gríðarlega sterkt og náið og á meðan ég var á Íslandi heimsótti ég hann á Litla Hraun tvisvar í viku. Hann er ótrúlegur einstaklingur, það vita allir sem hafa lagt sig eftir að kynnast honum. Margrét Frímannsdóttir fangelsisstjóri, hefur reynst okkur gríðarlega vel og greitt götu Tinds í skólamálum hans. Þar fer góð manneskja sem sér kosti Tinds í stað veikleika hans. Hún hefur oft reist mig við þegar ég hef hnotið og fundið fyrir leiða og vonleysi. Slíkt gleymist aldrei. Einu sinni hugsaði ég hvort ég hefði getað gert hlutina öðruvísi og þannig komið í veg fyrir það sem gerðist. Ég álít hins vegar núna að það sé mér að þakka hversu sterkur einstaklingur Tindur er, og að enginn annar hefði getað gert betur í uppeldi hans en ég. Það er ekki til það foreldri eða sú uppeldisaðferð sem læknar einhverfu, en það eru frábærir foreldrar sem skila af sér barni sem hefur notið hlýju og stuðnings, alveg sama á hverju dynur," segir Ýr.
Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira