Innlent

Orkan styrkir Fjölskylduhjálp Íslands

Orkan styrkir Fjölskylduhjálp Íslands nú fyrir jólin. Styrkurinn er á þá leið að fyrir hvern lítra sem keyptur er á bensínstöðvum Orkunnar, út um allt land til 21. desember, rennur króna til Fjölskylduhjálpar Íslands.

Í tilkynningu segir að til að styrkurinn nýtist sem best fyrir jól verður hann greiddur út á vikufresti fram að jólum, þ.e. 8. desember, 15. desember og 22. desember.

Ekki skiptir máli hvort greitt er með eða án korts eða lykils Orkunnar eða Skeljungs, hver einasti lítri telur.

Gera má ráð fyrir að upphæðin sem safnast fyrir Fjölskylduhjálp Íslands með þessu móti verði um 2,5 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×