Innlent

Enginn slasaðist í tveimur bílveltum

Enginn slasaðist í tveimur bílveltum í gærkvöldi og nótt.  Í gærkvöldi valt bifreið á Reykjanesbraut við Álfabakka.  Í bifreiðinni voru karl og kona og voru þau voru bæði ölvuð, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Í nótt valt bifreið á Þingvallavegi  við Skálafellsafleggjara. Ökumaður sem var einn í bílnum missti stjórn á honum í hálku eftir að hafa ekið í snjóskafl.   Ökumanninn, 18 ára stúlku,  sakaði  ekki enda  með öryggisbelti spennt.

Nokkur erill var hjá lögreglu í nótt vegna ölvunar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.  Átta manns fengu að gista  fangageymslur, flestir fyrir að vera ofurölvi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×