Innlent

Styður Guðbjart í formannsslagnum

Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
„Guðbjartur og Árni Páll eru báðir frambærilegir í alla staði. En ég vel þann sem ég tel líklegri til að geta sameinað jafnaðarmenn, og það er Guðbjartur."

Þetta segir Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hún tilkynnti í dag að hún styddi Guðbjart Hannesson í embætti formanns Samfylkingarinnar.

Sjálf segist Oddný ekki hafa viljað taka þátt í formannsslagnum.

„Ég hef verið hvött til þess," segir Oddný. „En ákvörðun mín liggur fyrir. Þetta er ekki rétti tíminn."

Að sama skapi útilokar hún að gefa kost á sér í embætti varaformanns Samfylkingarinnar.

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn 1. til 3. febrúar næstkomandi, í Valsheimilinu að Hlíðarenda í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×