Innlent

Græjuglæponar á Suðurnesjum

Grindavík.
Grindavík.
Lögreglunni á Suðurnesjum var um helgina tilkynnt um þjófnað úr gámi á gámasvæði í Grindavík. Búið var að brjóta upp hengilás á gámnum og stela úr honum veltisög og tveimur borvélum.

Þá var tilkynnt um innbrot í skemmu, þar sem geymdar eru bifreiðar og bátar og fleira.

Stolið hafði verið bakkmyndavél úr einni bifreiðanna, bakkmyndavél og útvarpi úr annarri og tækjum og tólum af bát. Lögregla rannsakar málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×