Lífið

Þórunn Antonía fagnar

Myndir/Ása Ottesen.
Þórunn Antonía frumsýndi myndbandið sitt við lagið Electrify My Heart á skemmtistaðnum Dolly í gærkvöldi. Þóra Hilmars leikstýrði myndbandinu en eins og frægt er orðið þá fékk Þórunn heiftarleg ofnæmisviðbrögð eftir tökur á myndbandinu og var lögð inn á sjúkrahús. Í myndbandinu er hún þakin málningu sem húð hennar þoldi ekki og tók það nokkra daga að jafna sig. Það var gríðarleg stemmning á Dolly eins og meðfylgjandi myndir sem Ása Ottesen tók sýna.
Þórunn frumsýndi nýtt tónlistarmyndband í gær.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×