Lífið

Þarna var gleðin við völd

Smelltu á mynd og notaðu örvarnar á lyklaborði til að fletta albúminu.
Smelltu á mynd og notaðu örvarnar á lyklaborði til að fletta albúminu.
Á laugardaginn stóð UN Women á Íslandi fyrir glæsilegum styrktarkvöldverði í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir Styrktarsjóð Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum sem er sá eini innan SÞ sem sinnir eingöngu þessu málefni.

Framlag Íslendinga til sjóðsins hefur vakið heimsathygli í gegnum árin og nú eru þrjú þúsund Íslendingar sem styðja sjóðinn með mánaðarlegum framlögum í Systralagið.

Sjóðurinn hefur haft áhrif á líf 6 milljónir kvenna og stúlkna og styrkt verkefni í 127 löndum. Gestir kvöldsins fögnuðu þeim árangri sem styrkþega sjóðsins hafa náð í sínum samfélögum; brotið upp skaðlega menningarbundna siði og verið fyrirmyndir annarra kvenna og komandi kynslóða.

Anna Svava Knútsdóttir og Bergur Ebbi Benediktsson sáu til þess að halda gleðinni í hámarki ásamt frábæru tónlistarfólki og má þar á meðal nefna Jón Jónsson, Snorra Helgason og Mr. Sillu og Unnstein úr Retro Stefson.

Ótrúlegur fjöldi sjálfboðaliða kom að undirbúningi kvöldsins og allir listamenn gáfu vinnu sína. Helga Mogensen og Sveinn Kjartansson buðu upp á þriggja rétta ferðalag um heiminn. Fyrirtæki lögðu til allan mat og fjölda glæsilegra vinninga.

Heiðursgestur kvöldsins var Mereym Aslan, framkvæmdastýra styrktarsjóðsins. Dúkkulísurnar luku kvöldinu með stæl og er óhætt að segja að gestirnir hafi gengið út með bros á vör.

UN Women á Facebook.

Kvöldið var vel heppnað og gestir glaðir.
Vinkonur og flokkssystur.
Skemmtilega fólkið skemmti.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×