Lífið

Dásamlegt jólaboð í Mjóddinni

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Gleraugnabúðinni í Mjódd í gær. Um var að ræða svokallað aðventuknús þar sem boðið var upp á heitt súkkulaði með Baileys ásamt konfekti frá Nóa Síríus og góðgæti frá Gott vörulínu Rikku.

Í boðinu afhjúpaði Harpa Guðjónsdóttir nýja og glæsilega skartgripalínu frá HARPA Jewelry.

Eins og stóð í boðskortinu þá skiptir miklu máli að sjónin sé ekki að trufla okkur yfir hátíðarnar. Það er nauðsynlegt að geta lesið á jólakortin án vandræða, brúna ekki kartöflurnar upp úr salti og setja ekki kardimommudropa í staðinn fyrir vanillu í vanillulengjurnar.

Gleraugnabúðin í Mjódd á Facebook.

Boðið var upp á góðgæti frá Gott vörulínu Rikku, kakó og Baileys.
Í Gleraugnbúðinni er nú byrjað er að selja gleraugu frá Alain Mikli, sem eru frönsk hátískugleraugu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×