Innlent

Stór hluti skotfimiiðkunar yrði bönnuð með nýrri vopnalöggjöf

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Stór hluti skotfimiiðkunar yrði bönnuð með nýrri vopnalöggjöf sem nú liggur fyrir á Alþingi segir framkvæmdastjóri Skotfélags Reykjavíkur. Hann vill ekki að hræðsluáróður í samfélaginu bitni á þeim sem fara löglega með skammbyssur.

Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra voru tæplega sextíu þúsund vopn skráð fyrsta apríl síðastliðinn, þar af tæplega sautján hundruð skammbyssur en mjög ströng skilyrði eru fyrir skammbyssueign almennings hér á landi.

„Þú þarft að vera í skotfélagi, vera búinn að vera þar í 2 ár, vera með svokallað meirapróf í annað ár og þarft að vera félagi og sýna að þú sért að stunda skotfimi þegar þú færð þessi leyfi," sagði Guðmundur Kr. Gíslason, framkvæmdastjóri Skotfélags Reykjavíkur.

Guðmundur selur byssur af öllum stærðum og gerðum í gegnum fyrirtækið Ísnes en á heimasíðu þess má meðal annars finna ýmsar notaðar skammbyssur sem minna á Hollywood hasarmyndir.

„Byssur sem þið sjáið í bíómyndunum eru 9 mm oft, þær eru óbreyttar, hér má nota slíkar byssur ef búið er að breyta þeim, hér eru til nokkrar þannig byssur sem hefur verið breytt, komnar með betri sigti, stillanleg og skefti líka og þar af leiðandi eru þær löglegar í keppni," segir Guðmundur.

Hann segir að ný vopnalöggjöf sem nú liggur fyrir Alþingi geti haft mikil áhrif á skotfimiiðkun hér á landi, þar sem grófar skammbyssur yrðu bannaðar. Þá sé sorglegt að hræðsluáróður í kjölfar aukinna umsvifa skipulagðra glæpasamtaka bitni á þeim sem nota byssurnar löglega.

„Það vantar betri kynningu á þessu, við höfum reyndar boðið allsherjarnefnd að koma í kynningu hjá okkur sem ég vona að þau munu þiggja, til að hjálpa þeim að taka ákvörðun um þetta, byssurnar sem slíkar eru ekki hættulegar það er mannskapurinn á bak við þær," sagði Guðmundur.

„Ef hið opinbera hefur vitneskju um það að menn séu með þessi leyfi og byssur á fölskum forsendum þá segjum við bara farið í manninn, takið þá fyrir en leyfið okkur að stunda þetta í þeim ramma sem er til staðar," segir Guðmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×