Lífið

Vælið í Versló vel heppnað

Myndir/Helena Sævarsdóttir
Það verður seint sagt að Verslunarskólanemar kunni ekki að halda viðburði sem slá þetta lika svona í gegn eins og meðfylgjandi myndir sem teknar voru á föstudaginn í Hörpu á Vælinu, söngvakeppni Verslunarskóla Íslands, sýna. Stemningin var frábær og nemendur sem mættu prúðbúnir voru sammála um að keppendur voru einstaklega hæfileikaríkir í ár.

Ólöf Kristín Þórsteinsdóttir sigraði keppnina með lagið Feeling Good sem Nina Simone söng eftirminnilega. Sagan segir að hver einasti Verslingur í salnum hafi fengið gæsahúð við flutning Ólafar.

Verslo.is

Ólöf sigraði Vælið með laginu Feeling good.
Verslingar mættu prúðbúnir á keppnina.
Þessir herramenn skemmtu sér vel.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×