Alger viðsnúningur hjá Orkuveitunni og jákvæð teikn á lofti Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. nóvember 2012 11:50 Grjótharður rekstrarmaður. Bjarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitunnar. Haraldur Flosi Tryggvason stjórnarformaður segir að Bjarni og starfsmenn fyrirtækisins hafi unnið þrekvirki að ná góðum árangri í rekstrinum á skömmum tíma. Vísir / Anton Brink
Árangur í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur hefur styrkt verulega getu fyrirtækisins til að greiða af þeim miklu skuldum sem á rekstrinum hvíla, en fyrstu níu mánuði ársins var rekstrarhagnaður fyrirtækisins 11 milljarðar króna. Sú leið Besta flokksins að aftengja afskipti stjórnmálamanna af fyrirtækinu virðist því hafa heppnast afar vel. Eftir að Besti flokkurinn komst til valda í borgarstjórn Reykjavíkur í meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna var strax ráðist í aðgerðir til að bregðast við fjárhagsvanda Orkuveitunnar. Besti flokkurinn gerði það sem skilyrði að fá ópólitískt fagfólk að rekstri fyrirtækisins. Í raun kvað við nýjan tón, enda höfðu stjórnmálamenn haft afskipti af því árum saman, eitthvað sem var harkalega gagnrýnt í skýrslu sérstakrar úttektarnefndar Orkuveitunnar sem kom út fyrr í haust. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs var rekstrarhagnaður Orkuveitunnar 11 milljarðar króna. Framlegð rekstrar er 17,8 milljarðar og hlutfall milli framlegðar frá rekstri og skulda er nú svipað og fyrir hrun haustið 2008. Aðgerðaáætlun Orkuveitu Reykjavíkur og eigenda, „Planið" svokallaða, var samþykkt vorið 2011 og felur í sér margvíslegar aðgerðir sem miða að því að bæta sjóðstöðu fyrirtækisins um 50 milljarða króna þangað til í lok árs 2016. Að loknum fyrstu níu mánuðum ársins 2012 er árangurinn um 1,2 milljörðum króna betri en gert er ráð fyrir í Planinu. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir að margt skýri þennan árangur. „Pólitískt er það að hafa tekið ákvörðun um að standa við þær ákvarðanir sem þurfti að ráðast í. Rekstrarlega er það sú staðreynd að Bjarni Bjarnason og hans fólk hafa náð ótrúlega föstum tökum á rekstrinum á skömmum tíma. Þetta hefur hjálpað til þess að ná trausti lánardrottna og þeirra fjármálastofnana sem eru að vinna með okkur," segir Haraldur Flosi.Haraldur Flosi Tryggvason, lögmaður og stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.Verður áfram ríkur skilningur hjá eiganda fyrirtækisins (Rvk. og fleiri sveitarfélög) um mikilvægi þess að láta það í friði? „Eftir því sem ég best veit þá verður það þannig. Eigendur hafa staðið sig vel, vil ég segja, í því að leyfa fyrirtækinu að reka sig á fjárhagslegum forsendum núna."Unnið að formúlu um arðgreiðslur Haraldur Flosi segir Planið hafa hjálpað, enda eigi það að gilda um fimm ára skeið. „Það hjálpar mönnum að halda fókusnum á það sem skiptir máli," segir hann. Unnið er að uppsetningu á formúlu í eigendastefnu Orkuveitunnar um hvernig fara skuli með arðgreiðslur ef aðstæður leyfa. „Það á að tryggja að arðgreiðslur eigi sér ekki stað nema það séu fjárhagslegar forsendur fyrir útgreiðslu þeirra," segir Haraldur Flosi. Arðgreiðslur án þess að fyrir hendi væru fjárhagslegar forsendur var gagnrýnt í skýrslu úttektarnefndar Orkuveitunnar frá þeim tíma sem flokkarnir fjórir skiptust á að halda um valdataumana a þessu þjónustufyrirtæki Reykjavíkur og nágrennis. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Sjá meira