Lífið

Sumir eru í betra formi en aðrir

Ifitness.is og Magnús Samúelsson halda pósunámskeið tvisvar á ári fyrir keppendur í vaxtarrækt, fitness og módelfitness. Að þessu sinni tóku tæplega 50 manns þátt sem er mettþátttaka. Í tilefni af því að einungist vika er í bikarmót IFBB sem haldið verður í Háskólabíó 16.-17. nóvember var haldin nokkurs konar general prufa þar sem líkt var eftir stemningunni sem myndasat á sviðinu í keppni. Alls mættu keppendur með hárið uppsett, förðun og keppnislit (brúnkukrem).

Ifitness.is

Ljósmyndarinnar Jónas Hallgrímsson setti upp ljósmyndastúdíó og myndaði keppendur í sitt hvoru lagi sem og allan hópinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×