Lífið

Stuð í Snúrunni á Snorrabraut

Smelltu á mynd til að fletta myndaalbúminu.
Smelltu á mynd til að fletta myndaalbúminu.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar ný verslun sem ber heitið Snúran á Snorrabraut var opnuð um helgina. Lífsstílsbúðin selur allt frá barnafötum upp í fallega hluti á borð við kertastjaka og landakort. Það eru þær María, Guðný og Stefanía sem standa að búðinni sem staðsett er beint á móti Austurbæjarbíó, Snorrabraut 38. Eins og sjá má var gleðin við völd og frábær stemning.



Hægt er að nálgast myndir af vörunum og nánari upplýsingar um búðina á Facebook-síðu Snúrunnar á Snorrabraut.

Það ríkti mikil gleði í opnun Snúrunnar.
Þessi fögru fljóð fögnuðu opnuninni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×