Lífið

Gleðin sveif yfir vötnum

Smelltu á mynd til að skoða albúmið.
Smelltu á mynd til að skoða albúmið.
Útgáfuhóf fór fram í Eymundsson Austurstræti í síðustu viku þegar Anna Ingólfsdóttir, Guðfinna Eydal og Jóna Hrönn Bolladóttir kynntu bók sína ,,Makalaust líf -- Um ást og sorg, úrvinnslu og uppbyggingu við makamissi". Óhætt er að segja gleðin hafi svifið yfir vötnum, því þótt efni bókarinnar sé alvarlegt fjallar hún ekki síður um ástina en dauðann, og um leiðina út úr sorginni.

Í bókinni segir Anna Ingólfsdóttir á mjög einlægan og fallegan hátt frá reynslu sinni af því að missa manninn sinn. Hún var aðeins 35 ára gömul þegar hann dó frá henni og þremur ungum dætrum. Frásögn Önnur er djúp og hispurslaus, og gefur innsýn í þá sáru reynslu manneskjunnar að horfa upp á maka sinn deyja. En frásögn Önnu er þó ekki síður hrífandi og fögur saga um ástina, og um leiðina út úr sorginni.

Í bókinni eru líka fjögur viðtöl við einstaklinga á mismunandi aldri sem hafa misst maka sinn. Þetta eru Kristján Gunnarsson (51 árs), Guðrún Elísabet Jónsdóttir (62), Sigurbjörg Ágústsdóttir (43) og Sigurður Þorkelsson (82). Viðtölin sýna hve margbreytilegar og flóknar tilfinningar fylgja missi maka og vinar. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir tók viðtölin af næmum skilningi.

Guðfinna Eydal, sérfræðingur í klínískri sálfræði fjallar um hvað sálfræðin segir um ástina, tengslin við makann og sorgarviðbrögð og samkennd eftir áfall. Guðfinna leitast við að svara spurningum á borð við: Bregðast konur og karlar ólíkt við áfalli? Læknar tíminn öll sár? Er hægt að læra á sorgina? Hvernig sýnum við sjálfum okkur samkennd og leitum lífslgeðinnar á ný?

Bókinni fylgir hljóðdiskur með hugleiðslu og djúpslökun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×