Milljarðahagnaður bankanna á verðbólgunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. október 2012 10:05 Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði.
Íslensku bankarnir hafa síðustu tólf mánuði hagnast um 8,9 milljarða af verðtryggingunni, án þess að gera neitt. Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Exeter í Bretlandi, bendir á þetta á facebooksíðu sinni. Hann vísar í nýja skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika þar sem fram kemur að verðtryggingarmisvægi viðskiptabankanna er jákvætt um 208 milljarða króna. Það þýðir að ef neysluverðsvísitalan hækkar um 1%, þ.e. 1% verðbólga, fá viðskiptabankarnir rúmlega 2 milljarða króna hagnað, vegna þess eins að verðtryggðar eignir þeirra eru meiri en verðtryggðar skuldir þeirra. „Ársverðbólga er nú 4,3%. Það þýðir að bankarnir hafa fengið 8,9 milljarða króna. síðustu 12 mánuði í "verðtryggingarhagnað". Án þess í raun að gera neitt," segir Ólafur. Hann segir að ekki megi gleyma því að viðskiptabankarnir geti aukið verðbólgu með því einu að lána út meira fé. Þeir geti því haft fullkomna stjórn á hagnaði sínum. Í samtali við Vísi segir Ólafur Margeirsson að þetta sé alls ekki nýtt vandamál og að bankarnir hafi oft sýnt betra uppgjör af þessari ástæðu. „Þetta er frjáls hagnaður og þeir geta aukið hann með því einu að lána út aukið fé," segir Ólafur. „Þeir græða því tvöfalt á því að lána út meira fé. Vegna þess að þeir fá vaxtahagnað af því að lána út meiri peninga og fá líka verðtryggingahagnað á að lána út meiri peninga líka," segir Ólafur að lokum.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira