Umboðsmaður setur ofan í við Persónuvernd BBI skrifar 11. september 2012 16:51 Róbert Ragnar Spanó er settur Umboðsmaður Alþingis. Mynd/Valli
Umboðsmaður Alþingis komst nýverið að þeirri niðurstöðu að úrskurður Persónuverndar hefði ekki verið verið í samræmi við lög. Persónuvernd hafði úrskurðað að tveir sálfræðingar hefðu brotið lög um persónuvernd þegar þeir unnu skýrslu um einelti á ákveðinni stofnun. Einn starfsmaður stofnunarinnar upplifði sjálfan sig sem fórnarlamb eineltis á vinnustaðnum óskaði eftir að gerð yrði úttekt á eineltinu. Sálfræðingarnir sem unnu skýrslu vegna kvörtunarinnar tóku viðtöl við starfsmanninn og birtu svo útdrátt úr samtölunum í skýrslunni. Starfsmaðurinn var ákaflega ósáttur við þetta og taldi sálfræðingana ekki hafa haft heimild til að birta samtölin í skýrslunni. „Sálfræðingarnir létu mig aldrei vita að það sem ég segði yrði birt í skýrslunni og henni síðar dreift," segir í kvörtun aðilans og er það metið sálfræðingunum til lasts. Persónuvernd taldi að með þessu hefðu sálfræðingarnir brotið lög um persónuvernd nr. 77/2000. Samkvæmt 20. grein laganna ættu ábyrgðaraðilar persónuupplýsinga að upplýsa viðkomandi aðila um ákveðna hluti. Umboðsmaður Alþingis taldi hins vegar að sálfræðingarnir hefðu ekki verið ábyrgðaraðilar í merkingu laganna. Því voru þeir ekki skyldir til að segja starfsmanninum hvernig upplýsingarnar yrðu notaðar. Úrskurður Persónuverndar þótti því ekki á rökum reistur og var nefndinni gert að taka málið aftur til meðferðar. Hér er úrskurður Umboðsmanns í heild sinni.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira