Innlent

Vilja skoða stofnun göngudeildar fyrir konur með legslímuflakk

Alþingi
Alþingi
Þingmenn Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna, leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi í dag um að Alþingi feli velferðarráðherra að beita sér fyrir fræðslu um legslímuflakk og skoða möguleika á stofnun göngudeildar fyrir konur með legslímuflakk.

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni segir að legslímuflakk, eða endómetríósa, sé krónískur, sársaukafullur sjúkdómur sem orsakast af því að frumur úr innra lagi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu en legholinu.

Sjúkdómurinn er meðfæddur og virðist að verulegu leyti háður erfðum. Frumurnar í legslímuflakki bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum líkt og þær gera á sínum eðlilega stað í leginu og blæðingar eiga sér stað inn í vefi og valda þar bólgu og örvefsmyndun með samgróningum milli líffæra í kviðarholinu og blöðrumyndun á eggjastokkunum. Í stað þess að fara út úr líkamanum eins og við hefðbundnar blæðingar kemst blóðið ekki í burtu, í raun innvortis blæðingar.

Svo er bent á að árið 2003 var opnuð göngudeild fyrir konur með legslímuflakk við Akademíska sjúkrahúsið í Uppsölum en það var fyrsta göngudeild sinnar tegundar í Svíþjóð þar sem safnað var saman sérhæfðu starfsfólki til að sinna konum með legslímuflakk. Miðstöðin var byggð upp að danskri fyrirmynd en í Danmörku hafa verið starfandi göngudeildir við háskólasjúkrahúsið í Árósum og Herlev/Glostrup-sjúkrahúsið. Að mati þingmannanna er mikilvægt að skoða möguleika á að byggja upp sams konar sérþekkingu á einum stað hér á landi sem heilbrigðis- og skólakerfið getur vísað konum með sjúkdóminn á. Þannig væri hægt að tryggja sem besta meðferð við sjúkdómnum.

Flutningsmenn tillögunnar eru: Eygló Harðardóttir (B), Álfheiður Ingadóttir (V), Björn Valur Gíslason (V), Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S), Siv Friðleifsdóttir (B), Mörður Árnason (S), Höskuldur Þórhallsson (B).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×