Viðskipti innlent

Reikna með 300 milljóna afgangi af rekstri Faxaflóahafna

Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt fjárhagsáætlun hafnanna fyrir næsta ár og gerir ráð fyrir að rúmlega 300 milljóna króna afgangur verði af rekstrinum.

Fjallað er um málið á heimasíðu Faxaflóahafna en þar kemur fram að áætlað er að tekjurnar aukist um 4,4% milli ára og verði 2,6 milljarðar króna. Gjöldin hækki um 2,1% og verði tæpir 2,3 milljarðar króna.

Faxaflóahafnir munu verja tæpum milljarði króna í framkvæmdir á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×