Ríkisstjórnin mun bæta tjón fjárbænda BBI skrifar 18. september 2012 14:44 Mynd/Hallgrímur Óli hjá Landsbjörg
Ríkisstjórnin mun styðja fjárhagslega við bændur á Norðurlandi sem hafa orðið fyrir tjóni vegna veðurfarsins á landssvæðinu í síðustu viku. Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvegaráðherra, við fyrirspurn Kristjáns L. Möller, formanns atvinnuveganefndar, á þinginu í dag. Ríkisstjórnin studdi vel við fórnarlömb náttúruhamfaranna á Suðurlandi þegar Eyjafjallajökull og Grímsvötn gusu. Eftir þær stuðningsaðgerðir liggja nú 25 - 30 milljónir króna í Bjargráðasjóði bænda. Þeim fjármunum verður öllum varið í stuðning við bændur á Norðurlandi vegna fárviðrisins í síðustu viku. Ef að upphæðin hrekkur ekki til fyrir öllu tjóninu þá mun ríkisstjórnin leggja meira fé í stuðninginn. Kristján L. Möller tók málið upp á þingi í dag. Þar sagði hann að fárviðrið hefði verð alvarlegt áfall fyrir fjárbændur. Enn er mikið fé á fjalli og óljóst hvert tjón hlýst af hamförunum þegar upp verður staðið. Staðan er grafalvarleg, en auk þessara áfalla er heyforði bænda slakur eftir þurrka í sumar. Auk fjárhagslegs tjóns hafa bændur orðið fyrir félagslegum áföllum vegna hamfaranna svoleiðis að mörgum eru að fallast hendur og einhverjir velta fyrir sér að hætta búskap. „Það má aldrei verða," sagði Kristján á þingi og taldi mikilvægt að stjórnvöld sendu skýr skilaboð um að hjálp myndi berast. Því spurði hann hvort ríkisstjórnin myndi standa að baki þeirra sem orðið hefðu fyrir áföllum. Steingrímur svaraði að þegar hefði verið samþykkt í ríkisstjórn að veita þá aðstoð sem mögulegt er að veita.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Loka öllum síðunum vegna öryggisgalla Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Sjá meira