"Hér verður ekki farið að stunda óreglu“ BBI skrifar 6. september 2012 21:01 Guðmundur Hallvarðsson og Jón Gnarr skáluðu í Skálafelli í morgun. Mynd/Hugrún Halldórsdóttir „
Hér verður ekki farið að stunda neina óreglu," segir Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu um nýjan veitingasal Hrafnistu sem nefndur er Skálafell. Salurinn hefur haft vínveitingaleyfi síðan í morgun. Guðmundur útskýrir að nafngiftin vísi ekki til skála sem klingja fullar af víni. Áður fyrr var skáli nokkur framan við matsalinn og dregur hann nafn sitt af skálanum, ekki vínglösum. Guðmundur minnir á að vistmenn Hrafnistu séu allir eldri en tvævetur - bókstaflega - og því sé óþarfi að hafa áhyggjur af því að þeir kunni ekki að fara með vín. Reyndar fannst Guðmundi og þáttarstjórnendum Reykjavíkur Síðdegis fremur spaugilegt eftir á að hyggja hversu líflegar umræður spunnust um þennan sal fyrr í sumar, en Guðmundur var gestur í útvarpsþættinum í dag. Guðmundur segir að veitingasalurinn muni lífga upp á tilveruna á Hrafnistu og heimsóknarferðir fólks til aldraðra ættingja verði skemmtilegri: Þú hefur farið að heimsækja einhvern ættingja þinn á vistheimili. Þá hefur íverustaðurinn verið herbergið. Þú hefur setið við rúmgaflinn. Það hefur svosem ekki verið mikil tilbreyting nema þú hefur reynt að halda uppi samræðum. En nú geturu komið hingað á Hrafnistu og heimsótt þína ættingja og þá geturðu bara sagt „Heyrðu eigum við ekki bara að kíkja niður á kaffihús og fá okkur vöfflu með rjóma. Eða eigum við að borða saman í hádeginu og fá okkur eitt rauðvínsglas, eða hvað?" Þetta sagði Guðmundur í þættinum í dag en innslagið í heild má nálgast á hlekknum hér að ofan.
Tengdar fréttir Jón Gnarr skálaði við eldri borgara - Mojito spilaði fyrir dansi Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu, skáluðu í bjór þegar nýr salur dvalarheimilis aldraðra, Hrafnistu Reykjavíkur, var vígður í dag. 6. september 2012 14:31 Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Sjá meira
Jón Gnarr skálaði við eldri borgara - Mojito spilaði fyrir dansi Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu, skáluðu í bjór þegar nýr salur dvalarheimilis aldraðra, Hrafnistu Reykjavíkur, var vígður í dag. 6. september 2012 14:31