Meniga slær um sig á finnskum fjármálamarkaði 8. september 2012 13:00
Íslenski fjármálahugbúnaðurinn Meniga er nú aðgengilegur í netbönkum yfir þrjátíu finnskra sparisjóða. Framkvæmdastjóri Meniga vonast til þess að notendur verði komnir yfir þrjár milljónir í tíu löndum á næstu níu mánuðum. Yfir tuttugu prósent íslenskra heimila nota Meniga til að fylgjast með heimilisfjármálum sínum á netinu, hugbúnaðurinn hefur verið í mikilli útrás á þessu ári og er hann nú aðgengilegur viðskiptavinum ScandiaBanken í Noregi og Svíþjóð auk þess sem finnskir notendur bættust við í þessarri viku. „Við vorum að tilkynna í gær að nú er innleiðingarverkefni lokið með sparisjóðasambandi Finnlands þar sem nær allir finnskir sparisjóðir yfir 30 að tölu eiga aðild að, þannig heimilisfjármálahugbúnaðurinn Meniga er nú aðgengilegur í netbanka þeirra undir þeirra vörumerki og þeir fóru í mikla auglýsingarherferð í vikunni til að kynna þjónustuna sem hefur farið mjög vel af stað hjá þeim," segir Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Meniga. Þar með bætast tvö hundruð þúsund finnskir notendur við og hafa því nú um milljón netbankanotendur aðgang að hugbúnaðinum í þremur löndum. „En við gerum annars ráð fyrir að miðað við önnur innleiðingarverkefni sem eru í gangi og við munum tilkynna um á næsti 6-9 mánuðum muni hugbúnaðurinn ná til 3-4 milljóna notenda um mitt næsta ár í 8-10 löndum." Hann segir fyrirtækið hafa tvöfaldast að stærð undanfarið ár og muni líklegast tvöfalda starfsmannafjölda sinn aftur á komandi misserum. „Við sjáum fram á að vera í rauninni að komast út úr sprota stigi og komast á það stig að vera í mun stöðugri og öflugri rekstur," segir Georg.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira