Innlent

Lést í Landmannalaugum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Erlendur karlmaður á þrítugsaldri lést á tjaldsvæðinu í Landmannalaugum í nótt. Tilkynnt var um veikindi hans um klukkan fjögur. Lífgunartilraunir voru reyndar en þær báru ekki árangur. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir að kallað hafi verið á þyrlu Landhelgisgæslunnar en læknir sem kom með þyrlunni úrskurðaði manninn látinn á staðnum. Lík mannsins var síðan flutt til Reykjavíkur í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×