Gera heimildarmynd um Guðmund Felix Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 29. júní 2012 12:06
Danska ríkissjónvarpið og RÚV hafa keypt sýningarrétt á íslenskri heimildarmynd um Guðmund Felix Grétarsson, sem er á leiðinni til Frakklands í handaágræðslu. Fleiri erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga. Tökur á myndinni eru þegar hafnar en hún mun fjalla um líf Guðmundar fyrir og eftir aðgerðina en hann missti báða handleggi í vinnuslysi fyrir tæpum tveimur áratugum. „Hann átti upprunarlega að fara núna í vor en það er búið að fresta því fram á haust. Hann fer ekki fyrr en í fyrsta lagi í uppskurðinn í október býst ég við," segir Guðbergur Davíðsson kvikmyndagerðamaður, einn af þeim sem vinnur að myndinni. Leyfi hefur fengist til að mynda aðgerðina sjálfa en Guðbergur áætlar að tökur standi yfir í um tvö ár. Verkefnið hefur hlotið vinnutitilinn „Nýjar hendur" og fjármögnunin felst í því að selja sjónvarpsréttinn fyrirfram og hefur danska ríkissjónvarpið þegar tryggt sér réttinn. „Við erum búin að selja hana til Danmerkur og erum í viðræðum núna við franskan meðaðila sem er kominn langt áleiðis með samninga í Frakklandi. Og síðan erum við með dreifingaraðila líka, alþjóðlegan, sem að koma okkur i´samband við mjög marga aðila. Þetta tekur allt langan tíma svona sölur en þetta er allt í gangi núna. Og RÚV hefur ennig tryggt sér réttinn? Já, RÚV hefur tryggt sér réttinn," segir hann. Búist er við að myndin fari einnig í kvikmyndahús en frumsýning er áætluð haustið 2014. „Þetta er mannleg saga, baráttusaga, kraftaverkasaga Guðmundar sem samblandast þá einhverjum vísindum. En þetta er aðallega kraftaverkasaga Guðmundar, hvernig hann berst fyrir því að fá nýjar hendur og hvernig honum tekst að aðlagast þeim ef og þegar það gerist," segir Guðbergur Davíðsson kvikmyndagerðamaður.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira