ASÍ íhugar að stefna LÍU Hugrún Halldórsdóttir skrifar 4. júní 2012 19:26
Alþýðusambandið telur útvegsmenn hafa farið langt út fyrir það sem skynsamlegt getur talist með ákvörðun sinn um binda flotann við bryggju. Ákall til stjórnvalda segir framkvæmdastjóri LÍÚ sem vonar að ekki þurfi að koma til frekari aðgerða. „LÍÚ gerir ráð fyrir að rúmlega 200 skip, eða 3500 til 4000 sjómenn sigli ekki til veiða í þessari viku," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Bæði forsætisráðherra og ASÍ segja aðgerðirnar ólöglegar en útvegsmenn eru á öðru máli." „Hér er ekki um vinnustöðvun að ræða í skilningi laga um stéttafélög um vinnudeilur. Þetta er ekki verkbann þannig að þetta er ekki vinnustöðvun og þar að leiðandi getur hún ekki orðið ólögmæt," segir Halldór Grönvold, framkvæmdastjóri ASÍ. ASÍ segir aðgerðirnar hins vegar félagslegar. „Og samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, 17 grein, þá eru slíkar aðgerðir í pólitískum aðgerðum bannaðar," segir Halldór. „Ég skil reyndar ekki að ASÍ skuli ekki skipa sér á bekk með sjómönnum og fiskverkafólki í þessu samhengi vegna þess að þau frumvörp sem liggja fyrir munu koma mjög við kjör þessara aðila," segir Friðrik. „Við teljum að við höfum verið í því með því sem við höfum verið að gera síðustu vikur og mánuði," segir Halldór. „Við teljum hins vegar að LÍÚ með sínum aðgerðum séu farnir langt út fyrir það sem hóflegt getur talist eða skynsamlegt." „Alls ekki," segir Friðrik. „Þetta er okkar ákall til stjórnvalda um það að setjast niður og vinna þetta með vönduðum hætti og á breiðum grundvelli." En er þetta rétta leiðin? „Auðvitað vildum við að ekki hefði þurft að koma til þessa," segir Halldór. „Og auðvitað vonumst við til að það þurfi ekki að koma til enn frekari aðgerða." Halldór segir ASÍ áskilja sér rétt til málshöfðunar til heimtu skaðabóta og sekta leiði aðgerðirnar til þess að launafólk tapi af þeim. „Það er hætt við því ef LÍÚ mun standa við að stöðva flotann alla þessa viku, þá muni það einhversstaðar koma niður á starfseminni í fiskvinnslustöðvunum," segir Halldór. „Það er eiginlega alveg augljóst mál."
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Sjá meira