Sport

Frjálsíþróttaþingið ályktaði um kjörið á Íþróttamanni ársins

Íþróttamaður ársins var fyrst valinn árið 1956. Hér eru verðlaunagripirnir tveir sem notaðir hafa verið í þessu kjöri.
Íþróttamaður ársins var fyrst valinn árið 1956. Hér eru verðlaunagripirnir tveir sem notaðir hafa verið í þessu kjöri.
Á 58. Frjálsíþróttaþingi, sem haldið var haldið á Selfossi sl. föstudag og laugardag var meðal annars samþykkt ályktun um kjör íþróttamanns ársins. Í greinargerð með ályktuninni segir m.a. að löngu tímabært sé að endurskoða aðkomu ÍSÍ að vali íþróttamanns ársins.

Ályktunin er svohljóðandi:

Frjálsíþróttaþing, haldið 16. og 17. mars 2012 á Selfossi, skorar á Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands að standa fyrir tilnefningum og kjöri íþróttafólks ársins þar sem gætt verði aukinnar fjölbreytni sem fellur að margþættum markmiðum íþróttastarfs og skráðir iðkendur innan ÍSÍ geti sent inn tilnefningar og greitt atkvæði.

Í greinargerð með ályktuninni segir m.a. að löngu tímabært sé að endurskoða aðkomu ÍSÍ að vali íþróttamanns ársins. Þótt Samtök íþróttafréttamanna hafi átt frumkvæði að núverandi tilhögun fyrir rúmri hálfri öld og haldið utan um verkefnið af myndarskap er ekki sjálfgefið að óbreytt tilhögun sé besti kostur íþróttahreyfingarinnar. Góð reynsla af árlegum verðlaunahátíðum í listgreinum (Eddan, Gríman, Íslensku tónlistarverðlaunin) bendir til að fjölbreytt verðlaun í íþróttastarfi myndu verða til að auka skilning á því að íþróttastarf snýst ekki eingöngu um árangur afreksíþróttafólks. Í ljósi jafnréttismarkmiða íþróttahreyfingarinnar er eðlilegt að efna til vals á íþróttakarli og íþróttakonu ársins. Að auki er unnt að auka fjölbreytni með því að velja íþróttalið ársins, fyrirmynd ársins, leiðtoga ársins (úr röðum forystumanna í íþróttahreyfingunni), þjálfara ársins og íþróttaviðburð ársins, svo að dæmi séu tekin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×