Móðurbróðir kraftaverkabarnsins aðstoðarmaður fjármálaráðherra 14. janúar 2012 10:47 Gunnar Tryggvason ásamt konu sinni, Úlfhildi Leifsdóttur, og Daníel Erni, þegar þau sóttu hann til Tyrklands.
Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef fjármálaráðuneytisins. Þar segir að Gunnar sé með B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, Dipl.Ing gráðu í raforkuverkfræði frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi og Diplomagráðu í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Gunnar hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur hjá KPMG á sviði orkuiðnaðar. Hann lætur af störfum hjá KPMG á meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns fjármálaráðherra. Gunnar hefur níu ára starfsreynslu af störfum á fjármálamarkaði, en hann starfaði áður hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Investum. Að auki hefur Gunnar sjö ára starfsreynslu sem verkfræðingur í áliðnaði. Gunnar er reyndar Íslendingum vel kunnugur, en systir hans, Dagbjört Þóra Tryggvadóttir, lést ásamt manni sínum, Jóhanni Árnasyni, í hörmulegu slysi í Tyrklandi í október árið 2010. Þau lentu í umferðarslysi á hraðbraut þar í landi, en sonur þeirra lifði slysið af. Tyrkneskir fjölmiðlar voru gríðarlega áhugasamir um málið og var mikið fjallað um drenginn, Daníel Erni, í fjölmiðlum þar í landi sem og hér, þar sem hann var kallaður kraftaverkabarnið, en hann var rúmlega sex mánaða gamall þegar slysið átti sér stað. Gunnar fór til Tyrklands ásamt konu sinni, Úlfhildi Leifsdóttur tannlækni, og sóttu þau drenginn. Alls eiga þau sex börn.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira