Nubo ekkert heyrt frá íslenskum stjórnvöldum 16. janúar 2012 18:49
Kínverjinn Huang Nubo undrast að engin svör hafi ennþá borist frá íslenskum stjórnvöldum um hvort honum verði leyft að fjárfesta í ferðaþjónustu á Íslandi og er þolinmæði hans nú á þrotum. Þetta var ein stærsta frétt nýliðins árs þegar Nubo heimsótti Norðurland í ágústmánuði til að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum, sem átti að verða fyrsti liður í tugmilljarða uppbyggingu ferðaþjónustu hans á Íslandi. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði hins vegar nei í nóvember við því að heimila jarðakaupin. Ráðherrar Samfylkingarinnar, bæði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðaráðherra, lýstu því þá yfir að annarra leiða yrði leitað til að liðka fyrir fjárfestingum Kínverjans enda kvaðst Nubo áfram áhugasamur um málið. Í því skyni fundaði fulltrúi hans, Halldór Jóhannsson, arkitekt á Akureyri, í byrjun desember með atvinnuveganefnd Alþingis og Íslandsstofu. Halldór segist síðan ekkert hafa heyrt um málið frá íslenskum stjórnvöldum og kveðst undrast í ljósi yfirlýsinga ráðherra að fá engar tillögur. Hann kveðst reglulega fá fyrirspurnir frá Nubo, síðast í morgun, um hvort eitthvað sé að gerast, og segir að þolinmæði Nubos sé nú á þrotum. Nubo sé hissa á því að fá engin svör frá íslenskum stjórnvöldum meðan stjórnvöld í nágrannaríkjum hefðu frumkvæði að því að bjóða hann velkominn til sín. Hjá Íslandsstofu fengust þær upplýsingar að málið væri á borði ráðherra.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira