Innlent

Sæti gæti færst af sjálfsdáðum

Nissan Navara. Myndin er úr safni.
Nissan Navara. Myndin er úr safni.
BL innkallar nú Nissan Navara (D40) og Nissan Pathfinder (D51). Ástæðan er galli í útbúnaði á bílstjórasæti sem gæti leitt til þess að stjórnborð fyrir sætisstillingar verði óvirkt. Í versta falli gæti bílstjórasætið tekið upp á því að færast af sjálfsdáðum.

Navara bifreiðarnar sem innkallaðar eru, voru framleiddar á tímabilinu 30. maí 2005 til 29. september 2009 og Pathfinder bifreiðarnar frá 1. nóvember 2004 til 5. nóvember 2009. Um er að ræða 313 bifreiðar. - ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×