Selastofnarnir hafa minnkað verulega 23. júní 2012 03:30 Á Vatnsnesi er að finna ein aðgengilegustu og stærstu sellátur á Íslandi, þar sem skoða má landseli í návígi. Tvær tegundir sela eru staðbundnar við strendur Íslands, landselurinn og útselur. Auk þeirra koma nokkrar tegundir farsela frá norðlægari slóðum reglulega inn á íslenskt hafsvæði.fréttablaðið/vilhelm fréttablaðið/vilhelm
Stofnar landsels og útsels eru mun minni en þeir voru árið 1980 þrátt fyrir takmarkaða veiði frá þeim tíma. Fækkunin hefur mest orðið í Breiðafirði, Faxaflóa, við Suðurströndina og Austfirði. Erlingur Hauksson, sjávarlíffræðingur hjá Selasetrinu á Hvammstanga, telur að tvennt komi helst til. „Það er engin ein skýring á fækkun á sel. Ein gæti verið veiði á vissum svæðum við landið, og þá ekki síst grásleppuveiðarnar grunar mig. Við Suðurland, þar sem sel hefur fækkað mikið, horfir maður helst til fækkunar á sandsíli, sem var mikilvægur hluti af fæðu dýranna.“ Erlingur hefur afturreiknað landselastofninn til aldamótanna 1900 út frá veiðitölum. Hann telur stofninn þá hafa verið um 40 þúsund dýr, og jafnvel stærri. Í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar um ástand nytjastofna segir að árið 2011 hafi borist upplýsingar um veiðar á 396 selum við Ísland, sem er líklega mjög vantalið. Árið 1986 var veiðin á sjötta þúsund dýr. Við Ísland er landselsstofninn nú talinn vera um ellefu þúsund dýr, eða þriðjungur þess sem hann var árið 1980. Stofn útsels er talinn vera um sex þúsund dýr, en var helmingi stærri fyrir áratug.- shá
Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Erlent Féll í Jökulsárlón Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Sjá meira