Eldri bílafloti – minna öryggi 23. júní 2012 07:00 Miklar framfarir hafa orðið á öryggisbúnaði í bílum undanfarin fjögur ár. Fólk er því öruggara í nýrri bílum. Fréttablaðið/stefán
Bílafloti landsins heldur áfram að eldast. Þetta sýna bæði tölur yfir nýskráða bíla og tölur yfir bíla sem skilað hefur verið til úrvinnslu. Á árunum fyrir hrun var í kringum átta þúsund bílum fargað á ári miðað við tæplega þrjú þúsund í fyrra samkvæmt tölum frá Úrvinnslusjóði. Svipaða sögu má segja um nýskráða bíla, þeim snarfækkaði eftir hrun. Afleiðingin er að meðalaldur bíla á Íslandi hefur hækkað úr 9,8 árum fyrir hrun upp í tæplega tólf ár. „Þetta er í engum takti við það sem það ætti að vera, miðað við eðlilega endurnýjun bílaflotans. Nú er reynt að keyra þetta eins lengi og mögulegt er. Óhóflega lengi miðað við öryggi bíla og eyðslu,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. Rúnar Gestsson, framkvæmdastjóri Vöku, finnur fyrir sömu þróun mála en hann segir þá bíla sem koma inn til hans í verulega slæmu ástandi. „Þetta eru bílar sem eru löngu komnir á aldur og ættu margir að vera komnir af götunni fyrir löngu. Menn keyra bara bílana þangað til það er ekki möguleiki að halda þeim gangandi lengur.“ Özur Lárusson segir að þrátt fyrir að nýskráningum hafi fjölgað lítillega í ár frá því í fyrra, sé ástandið langt í frá viðunandi. „Eðlileg endurnýjunarþörf bílaflotans er í kringum tólf til fjórtán þúsund nýskráðir fólksbílar á ári. Við reiknum með að þetta geti orðið 6.500 bílar í ár.“ Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að langt sé síðan stofnunin lýsti yfir áhyggjum af þróuninni. „Bílarnir eru alltaf að verða betri með tilliti til öryggis. Þess vegna er það mjög miður ef við höldum ekki í þá þróun með endurnýjun bílaflotans. Því eldri sem bílarnir eru þeim mun meiri líkur eru á að ekki sé allt í fullkomnu lagi. Þannig að við höfum af þessu áhyggjur, það er ekkert launungarmál.“ - ktg
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira