Boðar aukna þátttöku í opinberri umræðu 1. júlí 2012 12:02
Ólafur Ragnar Grímsson sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi í morgun að það væri margan lærdóm hægt að draga af nýloknum forsetakosningum, en Ólafur Ragnar var endurkjörin með um 53 prósent atkvæða. Meðal annars sagði hann að almenningur kallaði eftir vitrænni samræðu og að tími auglýsinga og slagorða væri liðinn. Athygli vekur að Ólafur Ragnar veitti Sprengisandi fyrsta viðtalið eftir að hafa verið endurkjörin en hann hóf einmitt baráttu sína í sama útvarpsþætti um miðjan maí. Ástæðuna sagði hann vera meðal annars vegna þess að útvarpið væri öflugur miðill þar sem hægt væri að kryfja mál til mergjar en ekki vera á handahlaupum, eins og hann orðaði það með hraða annarra fjölmiðla. „Kjarni málsins er sá, að sú lýðræðisbylting sem varð með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave, burtséð frá efni kosninganna, hefur styrkt á ótrúlegan hátt lýðræðislega kröfu fólks í landinu um að vilji þeirra ráði för," sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði vantraust á Alþingi einnig alvarlegt vandamál en það hefur hann áður minnst á í kosningabaráttunni. Hann sagði nauðsynlegt að endurreisa trú fólks á stofnuninni, enda einn af hornsteinum lýðræðisins. Hann benti ennfremur á að vantraust á Alþingi yki á þá kröfu almennings gagnvart forsetanum, að hann beitti sér með ríkari mæli í stjórnmálum en áður hefur þekkts. Hann sagði þó ekki eðlilegt að fara út fyrir stjórnskipun embættisins, líkt og sumir frambjóðendur hafi talað fyrir. Ólafur Ragnar sagði ennfremur, og það má vera að þar sé að finna einhverja stefnubreytingu sem áður var, um að forsetinn ætti að taka þátt í umræðum um hin stærstu mál, en með hófsömum og skynsömum hætti, með það að leiðarljósi að hjálpa þjóðinni að finna farsæla niðurstöðu. Nánar er rætt við Ólaf Ragnar á Stöð 2 í fréttunum í hádeginu.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Sjá meira