Seyðfirðingar halda sig til hlés á meðan Stiller tekur upp LVP skrifar 5. september 2012 11:11 Ben Stiller mun taka upp á Seyðisfirði á næstu dögum.
Bæjarbúar á Seyðisfirði koma til með að leika hlutverk í kvikmynd Ben Stiller þegar tökur hefjast í bænum á morgun. Ef allt gengur upp mun þó enginn verða þeirra var þegar myndin verður sýnd. Tökur hafa undanfarið staðið yfir hér á landi á kvikmynd bandaríska leikarans Ben Stiller The Secret Life of Walter Mitty. Næstu tvo daga fara tökur fyrir myndina fram á Seyðisfirði. Íbúum var sent bréf vegna þessa. Þar er þeim tjáð að í upptökunum þurfi að líta út eins og bærinn sé mannlaus og eru þeir beðnir um aðstoð við það. Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, segir þetta þó ekki þýða að bæjarbúar þurfi að halda sig inni allan daginn. „Það er svona verið að fara fram á samvinnu við bæjarbúa um að reyna að láta, allt svo þar sem er verið að taka þessi myndskeið hjá þeim að þau séu mannlaus. Þetta stendur yfir í einhverjar mínútur í hvert skipti," segir Vilhjálmur. Hann segir undirbúning hafinn fyrir morgundaginn. Til að mynda séu bæjarstarfsmenn að taka niður umferðarskilti sem ekki mega sjást í myndinni. Bærinn hefur ekki beinar tekjur af komu kvikmyndatökuliðsins. „Ég held að það sé svona ágætis bara kynning af þessu og það geta verið skemmtilegar myndir í þessu. Svo náttúrulega þessir þjónustuaðilar sem eru að vinna með þessu fólki það auðvitað koma svona óbeinar tekjur af því, bæði hvað varðar ferðaþjónustuaðila og svona aðrar aðila sem eru að þjónusta og aðstoða þá og ég held að þetta sé jákvætt fyrir þá," segir Vilhjálmur. Hann segir bæjarbúa sýna verkefninu áhuga en mörgum finnist spennandi að fá Ben Stiller í bæinn. „Það eru margir nokkuð spenntir fyrir því. Ekki síst hjá svona yngra fólki sko," sagði Vilhjálmur Jónsson bæjarstjóri á Seyðisfirði.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira