Leita sama mannsins á sitthvorum staðnum BBI skrifar 5. september 2012 18:48 Björgunarsveit. Mynd úr safni.
Tvær björgunarsveitir leita nú að sama slasaða ferðamanninum. Þær leita hins vegar á sitthvorum staðnum á landinu og ber mikið í milli. Ástæðan er sú að maðurinn hringdi sjálfur á Neyðarlínuna, óskaði eftir aðstoð og gaf upp gps-staðsetningu. Hægt er að stilla gps-tæki á mismunandi hátt og þar sem menn eru ekki vissir um hvernig gps-tæki hans er stillt þykir rétt að leita að honum á þeim stöðum tveimur sem koma til greina. Upphaflega var talið að göngumaðurinn væri slasaður á Styttingi, leiðinni milli Sprengisands og Laugafells. Staðsetningin var óljós enda heyrðist illa í manninum í síma. Björgunarsveitin Dalbjörg lagði af stað upp á hálendið fyrr í dag og áætlaði að vera komin að manninum um sex leytið.Hægt er að stilla gps-tæki á mismunandi hátt.Þar fannst maðurinn hins vegar ekki og brátt fóru að renna á leitarmenn tvær grímur. Þá rifjaðist upp fyrir mönnum að hægt er að stilla gps-tæki á mismunandi hátt. Á Íslandi er venjan að hafa tækin stillt á gráður og mínútur. Nú bendir hins vegar allt til þess að gps-tæki ferðalangsins sé stillt á gráður og hundraðshluta. Það þýðir að hann er staddur rétt innan við Akureyri. Því var björgunarsveitin Súlur send til að leita þar fyrir stundu. Enn hefur maðurinn ekki fundist, en hann er af erlendu bergi brotin. Ekki er heldur vitað hvort hann er alvarlega slasaður eður ei.Athugasemd klukkan 19:20: Björgunarsveitin Súlur er nú komin að manninum. Hann reyndist staddur ofan við Kjarnaskóg rétt innan við Akureyri. Hann verður brátt borinn niður í skála í grenndinni. Talið er að hann sé með brákað hné auk þess sem hann var orðinn nokkuð kaldur þegar björgunarsveitirnar komu að honum, enda er norðanvindur á staðnum.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira