Innlent

Fundu Njörð tæplega þúsund dögum eftir að hann týndist

Frá aðgerðum gæslunnar.
Frá aðgerðum gæslunnar. Skjáskot vf.is
Björgunarbáturinn Njörður Garðarsson, sem var í eigu björgunarsveitarinnar Suðurnes, fannst um helgina en þá hafði hann verið týndur síðan í október árið 2009. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Báturinn slitnaði aftan úr björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein á Faxaflóa í brotsjó árið 2009 og er nú loks kominn aftur í leitirnar. Eftir að hafa verið týndur í 996 daga þá fannst báturinn nú um helgina, 1077 mílum frá þeim stað sem hann týndist.

Þannig fannst Njörður við Vesterålen, sem er nyrst í Noregi, en það var norskur fiskibátur sem var bátsins var en stefnið á Nirði stóð upp úr hafinu. Báturinn, sem er Atlantic 21 harðbotna björgunarbátur, slitnaði aftan úr björgunarskipinu í október árið 2009 eftir að brotsjór hafði komið á skipið og hvarf sjónum manna. Bátsins var leitað lengi vel en án árangurs.

Hægt er að lesa frekar um málið á vef Víkurfrétta og skoða myndir frá aðgerðum landhelgisgæslunnar í Noregi þegar báturinn var dreginn upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×